Jafnlaunastefna

Jafnlaunastefna Sahara


Sahara gætir fyllsta jafnréttis við ákvörðun launa og annarra starfskjara. Allt starfssfólk skulu fá greidd jöfn laun og njóta sömu starfskjara fyrir jafnverðmæt störf. Skilgreining Sahara á launajafnrétti styðst við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynnjanna nr. 150/2020.


Í 6. gr. Jafnréttislaga er eftirfarandi skilgreinig:

Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða

jafn verðmæt störf. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið

sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynjamismunun. Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo.


Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Sahara sig til þess að innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við skilyrði jafnlaunastaðfestingar skv. lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr. 150/2020. Sahara hefur innleitt verklag og skilgreint launaviðmið til að tryggja að starfsfólk fái greitt fyrir störf sín út frá verðmæti starfa óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum

sjónarmiðum.


Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfi Sahara og að það standist lög varðandi jafna stöðu og

jafnan rétt kynjanna.


Til þess að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Sahara sig til að:

  • Innleiða, skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi sem er í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna
  • Framkvæma launagreiningu að minnsta kosti árlega þar sem jafnverðmæt störf eru borin saman til að tryggja að kynbundinn launamunur sé ekki til staðar. Helstu niðurstöður skulu kynntar fyrir starfsfólki
  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugu eftirliti og umbótum þar sem þess er þörf
  • Kynna jafnlaunastefnu fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega almenningi


Samþykkt í framkvæmdastjórn

Reykjavík 22. 03 2022

Af hverju stafræn auglýsingastofa? 

Every campaign we launch starts with a dream - your dream. And the first thing we do to discover that dream is listen to you. We want to hear about your company, your goals and your expectations. Once we understand what you, we select the team that’s most suitable to make it happen. We choose every member of your team with your goal in mind, and get them on board at the beginning of the process, so there is no doubt about where it’s all going to lead 
Share by: