ChatGPT Ads: Nýr auglýsingamiðill sem fyrirtæki ættu að fylgjast með
Auglýsingar eru komnar í ChatGPT og þar með hefur orðið til nýr auglýsingamiðill sem gæti breytt því hvernig fyrirtæki ná til fólks á meðan það leitar upplýsinga, ber saman valkosti og tekur ákvarðanir.
ChatGPT Ads er nú aðgengilegt auglýsendum á fjölmörgum mörkuðum og OpenAI hefur opnað fyrir Ads Manager þar sem fyrirtæki geta sett upp og stýrt herferðum.
En þetta er ekki einfaldlega ný útgáfa af Google Ads eða Meta Ads.
Það sem gerir ChatGPT sérstaklega áhugavert sem auglýsingamiðil er samhengið. Fólk kemur inn í ChatGPT með spurningar, verkefni, vandamál og ákvarðanir sem það þarf að taka. Fyrirtæki fá nú tækifæri til að birtast á viðeigandi augnabliki í því ferli.

Hvernig virka auglýsingar í ChatGPT?
Auglýsingar geta birst fyrir neðan svör ChatGPT og eru skýrt merktar sem kostað efni. Þær eru aðskildar frá svarinu sjálfu og samkvæmt OpenAI hafa auglýsendur ekki áhrif á þau svör sem ChatGPT veitir. Auglýsingar birtast nú fyrir notendur Free og Go áskrifta, en ekki á Plus, Pro, Business, Enterprise eða Edu.
Auglýsingin sjálf samanstendur meðal annars af nafni auglýsanda, fyrirsögn, lýsingu, mynd og tengli á lendingarsíðu (Sjá dæmi hér fyrir neðan).
Að því leyti er formið kunnuglegt.
Það sem gerist á bak við tjöldin er hins vegar töluvert frábrugðið því sem margir auglýsendur þekkja.
Frá leitarorðum yfir í samhengi og ásetning
Í Google Ads höfum við lengi unnið með leitarorð og leitarfyrirspurnir. Á samfélagsmiðlum höfum við meðal annars unnið með áhugamál, lýðfræði og hegðun.
ChatGPT bætir öðru lagi við þetta: samtalinu sjálfu og ásetningi notandans.
Kerfið tekur tillit til margra þátta þegar það metur hvaða auglýsing gæti átt við. Þar á meðal eru samhengi og ásetningur samtalsins, lendingarsíða auglýsandans, fyrirsögn og auglýsingatexti ásamt svokölluðum context hints. Þegar notandi hefur heimilað sérsnið auglýsinga geta einnig komið til skoðunar valin merki úr víðari notkun hans á ChatGPT.
Context hints eru sérstaklega áhugaverð fyrir markaðsfólk. Auglýsandi getur þar lýst þeim samtölum, viðfangsefnum eða þörfum þar sem vara eða þjónusta fyrirtækisins gæti átt við.
Þetta eru þó ekki hefðbundin exact-match leitarorð og þau tryggja ekki birtingu auglýsingar í ákveðnum samtölum. Þau hjálpa kerfinu frekar að skilja hvenær skilaboðið er líklegt til að eiga erindi við notandann.
Targeting í ChatGPT Ads
Samhengi samtalsins er þó ekki eina leiðin til að stýra herferðum.
Í Ads Manager geta auglýsendur meðal annars valið lönd sem þeir vilja ná til og, þar sem það er í boði, þrengri landsvæði á borð við fylki eða héruð, borgir og póstnúmer. Einnig er hægt að velja á hvaða platformi herferðin birtist, svo sem vef, iOS eða Android. Custom audiences má sömuleiðis nota í herferðum.
Þetta gerir fyrirtækjum kleift að sameina hefðbundnari targeting við það samtalssamhengi sem einkennir ChatGPT.
Fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu gæti til dæmis nálgast erlenda ferðamenn sem eru enn að skipuleggja Íslandsferð öðruvísi en ferðamenn sem þegar eru staddir á Íslandi.
Sama vara. Tvö mjög ólík augnablik.
Og þar af leiðandi líklega tvö ólík skilaboð.
Hvernig er greitt fyrir ChatGPT Ads?
ChatGPT Ads býður nú upp á þrjú meginmarkmið fyrir herferðir: CPM, CPC og oCPC. CPM hentar þegar markmiðið er fyrst og fremst sýnileiki og reach, CPC þegar markmiðið er að fá notendur inn á vef og oCPC þegar kerfið á að fínstilla birtingar út frá skilgreindri conversion-aðgerð eftir smell.
Í CPC-herferðum setur auglýsandi hámarksboð fyrir smell. OpenAI mælir sem stendur með því að byrja með hámarksboð á bilinu 3–5 Bandaríkjadalir fyrir smell.
Birting auglýsinga byggir síðan á relevance-weighted second-price auction. Það þýðir í einfölduðu máli að upphæð boðsins er ekki eini þátturinn sem ræður því hvaða auglýsing vinnur birtinguna, hversu viðeigandi auglýsingin er skiptir einnig máli.
Það ætti því að vera sterkur hvati fyrir fyrirtæki til að búa til sértæk og gagnleg skilaboð í stað þess að treysta á ein almenn auglýsingaskilaboð fyrir alla.
Auglýsing sem passar inn í samtalið
Þetta gæti orðið einn mikilvægasti þátturinn í árangri á ChatGPT Ads.
OpenAI mælir með því að auglýsendur búi til margar ólíkar útgáfur af auglýsingum og leggi áherslu á skýran ávinning fyrir notandann. Fyrirsagnir eiga að vera hnitmiðaðar og upplýsingagildi hátt, frekar en að treysta eingöngu á grípandi slagorð.
Ef einhver er að nota ChatGPT til að leysa ákveðið vandamál þarf auglýsingin að upplifast sem eðlilegt og gagnlegt næsta skref.
Þess vegna gæti textagerð fyrir ChatGPT Ads þurft að vera öðruvísi en fyrir hefðbundnar samfélagsmiðlaauglýsingar.
Minna:
„Við erum frábær. Smelltu hér.“
Meira:
„Þú ert að reyna að leysa þetta. Við getum hjálpað þér.“


Er hægt að mæla árangurinn?
Ads Manager býður upp á hefðbundnar árangursmælingar á borð við impressions, clicks, spend, CTR, average CPC, average CPM og conversions þegar conversion measurement hefur verið sett upp. Einnig er hægt að nota UTM-breytur til að fylgja umferð áfram yfir í eigin analytics-kerfum fyrirtækja.
Fyrir fyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref á miðlinum væri því skynsamlegt að nálgast ChatGPT Ads eins og aðrar nýjar auglýsingaleiðir: byrja með skýrt afmarkað próf (test), tryggja góða mælingu og byggja frekari fjárfestingu á niðurstöðunum.

Hvað með persónuvernd?
OpenAI segir auglýsingar ekki hafa áhrif á svör ChatGPT. Auglýsingakerfið er aðskilið frá líkaninu sem býr til svörin og auglýsendur geta ekki keypt sig inn í eða haft áhrif á þau svör sem notendur fá.
OpenAI hefur jafnframt sett reglur um hvar auglýsingar mega birtast og segir kerfið hannað til að koma í veg fyrir auglýsingabirtingar í viðkvæmu eða óviðeigandi samhengi.
Þetta verður lykilatriði í þróun miðilsins. Virði ChatGPT byggist að stórum hluta á trausti notandans á samtalinu og því þarf að vera skýr aðgreining á milli svarsins sem notandinn fær og kostaðrar birtingar.
Er ChatGPT Ads eitthvað sem fyrirtæki ættu að prófa?
Fyrir mörg fyrirtæki gæti svarið verið já, en það þýðir ekki endilega að færa stóran hluta auglýsingafjár yfir í ChatGPT strax.
Miðillinn er enn nýr og við eigum eftir að læra mikið um hegðun notenda, kostnað, conversion rates og hvaða vörur og þjónustur virka best.
En tækifærið er áhugavert.
ChatGPT Ads hefur þegar náð verulegum skala. OpenAI greindi frá því í lok ágúst 2026 að tugþúsundir auglýsenda væru farnir að nota kerfið og að ChatGPT væri með yfir einn milljarð virkra notenda á viku.
Fyrirtæki þurfa því að minnsta kosti að byrja að spyrja:
- Hvaða samtöl eiga sér stað í ChatGPT sem tengjast vörunni okkar eða þjónustunni?
- Hvaða spurningar er mögulegur viðskiptavinur að spyrja áður en hann kaupir hjá okkur?
- Og hvernig getum við verið gagnlegt næsta skref þegar sú þörf kemur upp?
Það er líklega betri byrjun á ChatGPT Ads stefnu en að byrja á löngum lista af leitarorðum.
Sahara og ChatGPT Ads
Við hjá Sahara fylgjumst náið með þróun ChatGPT Ads og þeim tækifærum sem miðillinn skapar fyrir íslensk fyrirtæki.
Eins og með alla nýja auglýsingamiðla teljum við skynsamlegast að nálgast þetta með skýrum markmiðum, góðri uppsetningu og mælanlegum prófunum. Það snýst ekki um að vera á nýjum miðli bara til að vera þar, heldur að finna út hvort hann geti skapað raunverulegt virði fyrir fyrirtækið.
Kynntu þér hvernig við getum aðstoðað
Hefur þú áhuga á að prófa ChatGPT Ads fyrir þitt fyrirtæki? Hafðu samband og við skoðum tækifærin með þér.