Email marketing í AI-heimi

Af hverju netföng eru orðin ein mikilvægasta eign fyrirtækja

Markaðssetning hefur aldrei verið jafn hröð og ófyrirsjáanleg og hún er í dag. Gervigreind er farin að hafa áhrif á hvernig fólk finnur vörur, hvernig efni er birt og hvaðan fyrirtæki fá athygli. Samhliða þessu taka hefðbundnar rásir sem við þekkjum öll, eins og leitarvélar og samfélagsmiðlar, stöðugum breytingum, auk þess sem sífellt er verið að þrengja að aðgerðum samhliða GDPR (almenn persónuverndarreglugerð). 



Í þessari þróun eru sumar rásir sérstaklega áberandi, þar á meðal eru email marketing, eða póstlistamarkaðssetning, og SMS-markaðssetning.


Þrátt fyrir að hafa verið lengi til staðar er póstlistamarkaðssetning í dag mikilvægari en nokkru sinni fyrr, sérstaklega fyrir fyrirtæki sem vilja styrkja langtímasamband við sína viðskiptavini og hámarka sín eigin gögn.

AI lofar miklu, en innleiðingin er enn á eftir

Alþjóðlegar rannsóknir, meðal annars frá Mailchimp sýna að um 98% markaðsfólks telur að AI muni bæta árangur í markaðssetningu, en aðeins um þriðjungur fyrirtækja hefur innleitt AI á víðtækan hátt. Þetta bil milli væntinga og raunverulegrar notkunar er víða kallað „AI reality gap“.


Ástæðurnar liggja sjaldnast í tækninni sjálfri, heldur í því að:
  • Það vantar skýra stefnu um hvernig AI á að nýtast í markaðssetningu
  • Fyrirtæki hafa takmarkað aðgengi að eigin gögnum
  • Áherslan er of oft lögð á verkfærin í stað þess að byggja upp sterkan grunn


Gervigreindin virkar best þegar fyrirtæki hafa skýran skilning á þörfum viðskiptavina sinna og eiga sjálf gögnin sem unnið er með. Þar kemur póstlista- og SMS-markaðssetning sterk inn.

Breytt „discovery-hegðun“ breytir leikreglunum

Það hvernig neytendur uppgötva vörur og þjónustu hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Áður var Google mjög ráðandi en í dag sjáum við frekari áhrif frá:

  • AI-ráðleggingum
  • Samfélagsmiðlum
  • Hegðun og samhengi notenda þvert á rásir


Alþjóðlegar rannsóknir frá Google, Gartner og WARC sýna að kauphegðun neytenda hefur færst frá markvissri leit yfir í ráðleggingar byggðar á fyrri hegðun, samhengi og trausti. Vörur og vörumerki birtast sífellt oftar sem „mælt með“ frekar en að notendur leiti að þeim sjálfir.


Þetta þýðir að fyrirtæki sem treysta að mestu leyti á umferð frá leitarvélum, samfélagsmiðlum eða hefðbundnum miðlum þurfa í auknum mæli að tryggja jafnvægi með eigin rásum, til að vera síður berskjölduð gagnvart breytingum.

Email marketing sem stöðug eign

Email er ein af þeim markaðsrásum þar sem fyrirtæki hafa beina stjórn á bæði gögnum og dreifingu og gegnir því mikilvægu hlutverki samhliða öðrum rásum. Fyrirtæki sem nota email marketing:

  • Eiga sambandið (gögnin)
  • Stjórna dreifingu efnis
  • Eru ekki háð breytingum á reikniritum annarra aðila


Þetta gerir email að mikilvægri undirstöðu í markaðsstefnu fyrirtækja, sérstaklega í heimi gervigreindar. Tölvupóstur tryggir beint samband við viðskiptavini, óháð því hvort umferð frá erlendum eða innlendum miðlum breytist.


Rannsóknir sýna jafnframt að email marketing heldur áfram að skila mjög sterkri arðsemi, sérstaklega þegar hún er nýtt sem hluti af heildstæðri markaðsstefnu.

Omni-channel nálgun styrkir árangur

Omni-channel nálgun snýst ekki um að vera alls staðar, heldur að markaðsrásirnar tali saman. Of oft eru póstlistar, vefsíða, samfélagsmiðlar og SMS rekin sem aðskilin verkefni, með mismunandi skilaboð, tímasetningar og markmið. Fyrir notandann verður upplifunin þá ósamræmd og ruglingsleg.


Þegar omni-channel er rétt uppsett:


  • Styðja rásir hver aðra í stað þess að keppa um athygli
  • Skilaboð byggjast upp í skrefum, í stað þess að það sama sé endurtekið
  • Gögn úr einni rás nýtast til að bæta árangur í annarri


Fyrirtæki sem nýta þrjár eða fleiri samtengdar markaðsrásir sjá allt að 250% meiri þátttöku (svörun) samkvæmt alþjóðlegum rannsóknum. Email gegnir þar lykilhlutverki sem tengipunktur, þar sem gögn úr öðrum rásum nýtast til að gera samskipti persónulegri og markvissari.

Markaðssetning með póstlistum gegnir einnig öðru mikilvægu hlutverki, þar sem hún safnar og miðlar gögnum sem erfitt er að fá annars staðar. Hegðun gagnvart tölvupósti, þ.e. hvað fólk opnar, hvað það smellir á og hvenær, getur gefið sterkar vísbendingar um áhuga og kaupvilja, sem síðan má nýta í bæði auglýsingum og efni á vefsíðu.


Rannsóknir sýna einnig að omni-channel viðskiptavinir hafa hærra líftímagildi (LTV) en þeir sem eiga aðeins í samskiptum um eina rás. Þeir kaupa oftar, verja meiri tíma í samskiptum við vörumerkið og sýna meiri tryggð til lengri tíma. Fyrir íslensk fyrirtæki, þar sem markaðir eru oft litlir og samkeppni mikil, getur þetta skipt sköpum.


Í stað þess að spyrja „hvaða rás virkar best?“ er því oft gagnlegra að spyrja: hvernig vinna rásirnar saman að sama markmiði?

Algeng mistök í email marketing

Þrátt fyrir mikla möguleika sjáum við oft sömu áskoranir, sérstaklega á íslenskum markaði. Fyrirtæki safna netföngum, en nýta þau ekki markvisst. Sendingar eru óreglulegar og sama efni fer á alla, óháð áhuga eða hegðun.



Email marketing snýst ekki um magn, heldur gæði. „Relevance“, samhengi og tímasetning skipta mun meira máli en fjöldi sendinga.

Hvernig nýtist AI best í email marketing?

AI getur hjálpað fyrirtækjum að:

  • Velja betri tímasetningar
  • Skipta listum niður á markvissan hátt
  • Sérsníða efni á skalanlegan máta
  • Læra hraðar af hegðun notenda


Mikilvægt er þó að muna að gervigreindin leysir ekki af hólmi skýra stefnu. Hún magnar upp það sem fyrir er, hvort sem það er gott eða slæmt.


Svo má ekki gleyma að nefna að AI hjálpar okkur að fá hugmyndir að nýrri nálgun þegar kemur að textagerð fyrir email, eða að búa til mismunandi útgáfur af „krækjum“ fyrir fyrirsagnir. 

Hvar ættu fyrirtæki að byrja?

Fyrirtæki sem vilja styrkja email marketing þurfa ekki flókið kerfi til að byrja. Mikilvægast er að:

  • Skilgreina tilgang samskipta
  • Vinna markvisst með eigin gögn
  • Tengja email betur við aðrar markaðsrásir
  • Vera samkvæm sjálfum okkur og læra af árangri


Email marketing snýst ekki bara um tilboð og söluskilaboð. Þetta er líka öflug leið til að segja sögur, miðla þekkingu og byggja upp samband sem fær fólk til að vilja kynnast fyrirtækinu betur.


Smá en stöðug skref skila oft meiri árangri en stórar markaðsherferðir sem endast stutt.

Niðurstaða

Í heimi þar sem athygli er dýrmæt og óstöðug eru bein tengsl við viðskiptavini ein verðmætasta eign fyrirtækja. Email marketing er ekki gamaldags rás, hún er grunnstoð fyrir framtíðina.


Fyrirtæki sem byggja upp sterkt email marketing í dag eru betur í stakk búin til að takast á við þær breytingar sem gervigreindin og ný hegðun neytenda mun hafa í för með sér.