Hvernig leikjavæðing er að breyta markaðssetningu og hvernig þú getur nýtt hana

Samantekt frá morgunviðburði Sahara & Playable

Hvað ef markaðssetningin þín myndi ekki einungis ná athygli heldur halda henni?

Þetta var kjarninn í morgunviðburði sem við hjá Sahara héldum í samstarfi við Playable, þar sem við fórum yfir hvernig leikjavæðing (e. gamification) er að þróast í að verða alvöru hluti af árangursdrifnu markaðsstarfi.


Við fengum til okkar sérfræðinga sem deildu bæði alþjóðlegri innsýn og raunverulegum dæmum frá íslenskum fyrirtækjum. Það sem stóð upp úr var hversu praktísk og mælanleg þessi nálgun getur verið þegar hún er rétt framkvæmd.

Leikjavæðing er meira en skemmtilegir leikir

Það er auðvelt að hugsa um leikjavæðingu sem eitthvað létt og skemmtilegt, eitthvað sem bætir aðeins við herferð. En það sem kom skýrt fram á morgunviðburðinum er að leikjavæðing er að þróast í strategískt tól sem styður við stærri markmið fyrirtækja.


Að leikjavæða herferð á réttan hátt getur:


  • Aukið þátttöku langt umfram hefðbundnar auglýsingar.
  • Lengt þann tíma sem notendur verja með vörumerkinu.
  • Skapað dýpri tengingu sem erfitt er að ná með passífu efni.


Ástæðan er einföld: notandinn verður virkur þátttakandi. Hann smellir ekki bara, heldur tekur þátt, velur, bregst við og upplifir.

Athygli, þátttaka og minnisfesting

Ein stærsta áskorun markaðsfólks í dag er að ná athygli. Við erum stöðugt að keppa við mikið magn af efni og flest skilaboð fá aðeins sekúndubrot til að ná í gegn.


Leikjavæðing herferðar brýtur upp þetta mynstur. Í stað þess að byggja eingöngu á efni sem gjarnan er skrollað framhjá, hefur hún eitthvað sem fólk tekur þátt í og það hefur áhrif á hvernig það man eftir vörumerkinu.


Þegar neytandi þarf að taka ákvörðun, fær umbun eða tekst á við áskorun, þá virkjar það allt aðra upplifun en hefðbundin auglýsing.


Þess vegna sjáum við oft meiri athygli, lengri tíma fyrir framan efnið sem hefur þau áhrif að neytandinn man betur eftir vörumerkinu.

Byrjaðu á markmiðinu, ekki leiknum

Algengustu mistökin sem fyrirtæki gera er að byrja á röngum enda. Spurningin ætti ekki að vera: „Hvaða leik ætlum við að búa til?“

Heldur:

  • Hverju viljum við ná fram?
  • Hver er markhópurinn?
  • Hvar er hann í ferlinu?
Er markmiðið að:

  • Byggja upp vitund?
  • Auka virkni/þátttöku?
  • Safna gögnum?
  • Keyra upp sölu?

Þegar það liggur fyrir, þá fyrst á að velja rétta formið.


Einfaldur quiz-leikur getur verið fullkominn í einu tilfelli. á meðan „skill-based“ leikur eða „spin to win“ virkar betur í öðrum. Lykilatriðið er að leikjavæðing sé hugsuð í stærra samhengi, að leikur sé ekki settur fram sem stök hugmynd, heldur sem hluti af heildarstefnu.

Gögnin eru stærsta tækifærið


Eitt af því sem kom hvað sterkast fram á viðburðinum er hversu mikil tækifæri felast í gögnunum.

Flestir hugsa um: „Hversu margir skráðu sig?“


En það er bara byrjunin. Leikjavæðing gefur miklu dýpri innsýn:


  • Hver byrjar en klárar ekki?
  • Hver kemur aftur og tekur þátt aftur?
  • Hvernig hegðar notandinn sér innan leiksins?


Þetta eru merki um áhuga, ásetning og tengingu við vörumerkið sem gerir fyrirtækjum kleift að sérsníða skilaboð betur, bæta endurmarkaðssetningu og taka upplýstari ákvarðanir.

Áhrifin fjara ekki út þegar herferð lýkur


Algeng hugsun er að herferð sé „búin“ þegar birtingum lýkur en með leikjavæðingu er það í raun bara byrjunin á öðrum fasa. Þau fyrirtæki sem ná mestum árangri eru þau sem nýta gögnin áfram í beinni markaðssetningu, byggja upp hópa fyrir endurmarkaðssetningu (e. remarketing) og halda samtalinu lifandi.


Þannig verður leikjavæðingin ekki bara hluti af einni herferð heldur byrjun á langtímasambandi.


Áhrifin sjást líka víðar en í beinum mælingum:


  • Aukin leit að vörumerki.
  • Fleiri beinar heimsóknir.
  • Sterkari tenging við vörumerkið.


Sem getur skilað sér í aukinni sölu, bæði „online“ og „offline“.

Hvað þýðir þetta fyrir þitt fyrirtæki?

Leikjavæðing er ekki töfralausn. en hún er öflugt tól þegar hún er notuð rétt.


Ef þú ert að hugsa um að prófa:


  • Byrjaðu á skýru markmiði.
  • Hugsaðu leikjavæðinguna í stærra samhengi.
  • Ekki ofhugsa sjálfan leikinn, einfalt getur virkað best.
  • Leggðu áherslu á hvernig þú nýtir gögnin eftir á.

Að lokum

Viðburðurinn sýndi skýrt að leikjavæðing er að færast nær kjarna markaðssetningar. Frá því að vera „nice to have“ yfir í að vera raunverulegt samkeppnisforskot. Spurningin er ekki lengur hvort hún virkar, heldur hversu vel þú nýtir hana.

Kynntu þér hvernig við getum aðstoðað

Ertu klár í að taka stafræna ásýnd fyrirtækisins á hærra stig? Vinnum saman og sköpum áhrifaríkar, gagnadrifnar herferðir sem auka hjá þér viðskiptin.