Playable og Sahara kynntu kraft leikjavæðingar fyrir íslenskum fyrirtækjum
Um 40 fulltrúar fyrirtækja komu saman á morgunverðarfundi í Reykjavík þar sem Sahara, samstarfsaðili Playable á Íslandi, kynnti ásamt danska fyrirtækinu hvernig leikjavæðing getur umbreytt markaðsstarfi.
Á fundinum, sem haldinn var á mánudagsmorgni í höfuðstöðvum Sahara, var lögð áhersla á hvernig gamification getur aukið þátttöku, stækkað póstlista og byggt upp sterkari tengsl við viðskiptavini. Playable, sem hefur höfuðstöðvar í Danmörku, hefur á síðustu árum unnið með fjölbreyttum íslenskum fyrirtækjum með mælanlegum árangri.

Við höfum séð íslensk fyrirtæki nýta kerfið okkar á fjölbreyttan hátt. Allt frá app-leikjum til jóladagatala, og niðurstöðurnar sýna að gamification getur aukið þátttöku og umferð umtalsvert, jafnvel tvö- til þrefalt í mörgum tilfellum. Þátttakendur fá skemmtilega upplifun sem styrkir tengsl þeirra við vörumerkið, og fyrirtæki sjá að gamification er orðið lykilþáttur í að byggja upp traust og tryggð til framtíðar,“ segir Alexandra Ósk Sigurjónsdóttir Jensen, Enterprise Sales Executive hjá Playable.
Sahara sýndi á fundinum hvernig leikjavæddar herferðir nýtast í beinni markaðssetningu, sérstaklega í uppbyggingu og virkjun póstlista. Með markvissri eftirfylgni í gegnum tölvupóst er hægt að umbreyta leikjaþátttöku í raunveruleg viðskiptatækifæri.
„Við sjáum skýran árangur hjá okkar viðskiptavinum þar sem Playable hefur verið samþætt í herferðir. Póstlistar hafa stækkað verulega og tengingin við viðskiptavini orðið bæði sterkari og persónulegri,“ segir Vala Fanney, sérfræðingur í beinni markaðssetningu hjá Sahara.
Playable býður upp á fjölbreytt úrval leikja, þar á meðal lukkuhjól, spurningaleiki og persónuleikapróf, sem nýtast bæði í stafrænu umhverfi og á viðburðum. Með samstarfi Sahara og Playable fá íslensk fyrirtæki nú beinan aðgang að lausnum sem hafa sannað sig á alþjóðlegum markaði.







