Morgunverðarviðburður á vegum Mailchimp og Sahara

Fimmtudaginn 5. febrúar

Gervigreind í tölvupóst-markaðssetningu 

Gervigreind er að breyta markaðslandslaginu hratt og um leið gera tölvupóst að einni mikilvægustu markaðsrás fyrirtækja. Á þessum viðburði frá Mailchimp og Sahara verður fjallað um hvernig AI og ný hegðun neytenda hafa áhrif á markaðssetningu í dag.


Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi þess að fyrirtæki safni eigin gögnum og eigi þau sjálf, og hvernig tölvupóstur er lykilrás til að byggja upp traust, persónuleg samskipti og sjálfbæran vöxt.


Einnig verður sýnt hvernig hægt er að nýta gervigreind í tölvupóstmarkaðssetningu til að bæta persónusnið, auka virkni og ná betri árangri með gögnin sem fyrirtækið á sjálft.

Viðburður fyrir markaðsfólk sem vill vera skrefi á undan í heimi AI.

Emilia Whitaker

Strategic Partnerships Manager hjá Intuit Mailchimp

Emilia Whitaker hefur nær áratuga reynslu af því að stækka og efla umboðsskrifstofur og fyrirtæki innan stafræns viðskiptageira. Hún hefur starfað víðs vegar innan rafrænna viðskipta – bæði frá sjónarhorni umboðsskrifstofa, greiðslulausna og markaðsmála – og býr því yfir heildstæðri sýn á stafrænan vöxt.

Adnaan Mukta

Account Executive hjá Intuit Mailchimp

Adnaan Mukta er Account Executive hjá Intuit Mailchimp. Fókus hans liggur í að aðstoða fyrirtæki við að hraða vexti með markaðssjálfvirkni og CRM-lausnum. Ferill hans á rætur að rekja til rafrænna viðskipta og greiðslulausna, meðal annars hjá fintech-fyrirtækinu Mollie, sem veitir honum einstaka innsýn í stafræna vistkerfið. Með því að sameina reynslu sína af rekstri rafrænna viðskipta og öflugum verkfærum Mailchimp hjálpar hann vörumerkjum að öðlast dýpri innsýn, vaxa markvisst og byggja upp langvarandi tryggð viðskiptavina.

Vala Fanney

Direct & Digital Marketing Specialist hjá Sahara

Vala starfar sem Direct Marketing Specialist hjá Sahara auglýsingastofu og býr yfir reynslu af fjölbreyttum þáttum beinnar markaðssetningar. Hún vinnur markvisst með gamification, tölvupóstmarkaðssetningu og auglýsingar á samfélagsmiðlum, með það að markmiði að skapa gagnadrifin, áhrifarík samskipti sem skila raunverulegum árangri.

Hámarks skráningu hefur verið náð og höfum við lokað fyrir skráningu.

Morgunverðarviðburður

á vegum Mailchimp

og Sahara

Morgunverðarfundurinn fer fram hjá Sahara, Vatnagörðum 8, 104 Reykjavík.

Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl 8:30 - 9:00.

Fyrirlestur hefst kl 9:00 - 10:00

Sætafjöldi takmarkast við 20 manns.


Áhugasamir geta óskað eftir 30 mín ráðgjöf í kjölfar viðburðar, og munum við vera í sambandi við þá sem óska eftir því sérstaklega til að finna tíma.

Sahara x Mailchimp Event