TikTok á Norðurlöndum: Öryggi, traust og framtíð samfélagsmiðla

Fræðsluviðburður á vegum TikTok og Sahara

þriðjudaginn 16.júní

Um viðburðinn

TikTok er eitt áhrifamesta samfélagsmiðlafyrirtæki heims með yfir milljarð virkra notenda og hefur á undanförnum árum verið í brennidepli umræðunnar um öryggi, persónuvernd, gagnsæi og ábyrgð stafrænna miðla.

Á þessum viðburði fá gestir einstakt tækifæri til að heyra beint frá sérfræðingum TikTok sem starfa á Norðurlöndum og í Evrópu við stefnumótun, öryggismál og samskipti við stjórnvöld, fjölmiðla og hagsmunaaðila.


Að loknum erindum verða umræður og fyrirspurnir frá gestum.

Fjallað verður meðal annars um:

  1. Öryggi barna og ungmenna á samfélagsmiðlum
  2. Aldurstakmarkanir og stafræna ábyrgð
  3. Kosningaöryggi og baráttu gegn misupplýsingum
  4. Hvernig TikTok vinnur með stjórnvöldum og eftirlitsaðilum
  5. Nýjustu þróun í samfélagsmiðlum og stafrænum samskiptum

Kjartan Sverdrup

Government Relations and Public Policy Manager, TikTok Norway & Iceland

Kjartan leiðir samskipti TikTok við stjórnvöld, stofnanir og hagsmunaaðila í Noregi og á Íslandi. Hann starfar við stefnumótun á sviðum á borð við öryggi barna og ungmenna, persónuvernd, kosningaöryggi og stafræna ábyrgð. Áður starfaði hann bæði hjá norska þinginu og ríkisstjórn Noregs.

Lukasz Lindell

Senior Policy Communications Lead, TikTok Nordics

Lukasz ber ábyrgð á samskiptum TikTok við fjölmiðla á Norðurlöndum. Hann vinnur með málefni tengd öryggi á netinu, gagnsæi, regluverki og ábyrgð stafrænna miðla og hefur víðtæka reynslu af stefnumótandi samskiptum og almannatengslum.

Richard Collard

Minor Safety Public Policy Lead, TikTok Europe

Richard leiðir stefnumótun TikTok í Evrópu þegar kemur að öryggi barna og ungmenna á netinu. Áður starfaði hann hjá NSPCC, stærstu barnaverndarsamtökum Bretlands, þar sem hann tók þátt í mótun og innleiðingu bresku Online Safety Act löggjafarinnar. Hann hefur verið leiðandi rödd í umræðu um réttindi barna í stafrænum heimi og örugga þátttöku þeirra á netinu.

Skráning
Fræðsluviðburður á vegum

TikTok & Sahara

Viðburðurinn fer fram hjá Sahara þriðjudaginn 16. júní í Vatnagörðum 8, 104 Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 15:00 - 16:00.


Fyrirlestur hefst kl 15:10 - 16:00

Opnar umræður og tengslamyndun eftir viðburð.

Sætafjöldi takmarkast við 40 manns.

TikTok x Sahara