Fjarðarkaup - HM leikur

Fjarðarkaup

HM leikur 2022

Hugmyndavinna

Framleiðsla

Hönnun

Umsjón með herferð

Gamification

Fjarðarkaup

HM leikur 2022

Fjarðarkaup leitaði til Sahara með það að gera leik sem var í tengslum við HM í fótbolta. Tilgangur leiksins var að safna fleirum á póstlista sem Fjarðarkaup nýtir til að vekja athygli á tilboðum sem og uppskriftum. Þau sem tóku þátt í leiknum áttu möguleika að vinna ferð fyrir tvo á enska boltann að verðmæti 300.000 kr sem og veglega aukavinninga frá Nóa Siríus og Ölgerðinni. Leikurinn var í keyrslu í fjórar vikur.


Ákveðið var að finna andlit Fjarðarkaupa yfir HM sem var hún Amma Fjarðarkaup. Amma Fjarðarkaup er vinaleg og “trendy” og fylgist vel með HM. Hún endurkastar einnig tilfinningu í andrúmslofti Fjarðarkaupa og kúnnahópinn sem verslar í Fjarðarkaup.

HVERNIG VAR FARIÐ AÐ

Leikurinn var hannaður sem Drop Down leikur þar sem markmiðið var að safna 100 stigum. Þátttakendur áttu að grípa vörur frá Ölgerðinni, Nóa Síríus og fótbolta icon. Til þess að komast í pottinn þurfti að ná 100 stigum og einn heppinn aðili var valinn úr þeim hópi og átti möguleika að vinna ferð á enska boltann að andvirði 300.000 kr. eða gómsæta vinninga frá Ölgerðinni og Nóa Síríus á meðan HM stóð yfir. 

HELSTU NIÐURSTÖÐUR

Í framhaldi af uppsetningu var leikurinn keyrður á miðlum Meta, Google og innlendum miðlum. Áhersla var lögð á traffic auglýsingar á opinn hóp fólks sem búsett er á Höfuðborgarsvæðinu, sem og einstaklingum sem hafa heimsótt heimasíðuna. Leikurinn var einnig sendur á núverandi póstlista Fjarðarkaupa, til að gefa núverandi áskrifendum möguleika á að komast í pottinn.

AVERAGE TIME SPENT

Að meðaltali voru þeir sem heimsóttu lendingarsíðu Fjarðarkaupa í 1.36 mín á síðunni sem er yfir almennt meðaltal í leiknunm sem þessu, eða 1.1 mín.


CONVERSION RATE

Hlutfall þeirra sem tóku þátt á móti þeim sem heimsóttu síðuna var 64% á meðan almennt meðaltal í leikjum sem þessum er 26%


TIME SPENT

Samtals eyddu þátttakendur 219.4 klst á lendingarsíðu.

Share by: