Arna kom til Sahara með ósk um að skapa líflega herferð fyrir Örnu + próteindrykkinn þeirra. Við fórum þá leið að sýna fólk í fjölbreyttum aðstæðum í lífinu þar sem Arna + kemur sér vel í öllum aðstæðum hvort sem það er í leik eða starfi, á sjó eða á landi.
Í herferðinni sjáum við trillukarlinn á leið út í túr dagsins, íþróttakonuna á sundæfingu dagsins og mægður í ævintýraferð út í skógi að njóta saman. Allar aðstæður eiga það sameiginlegt að það er auðvelt að grípa með sér Örnu + með út í daginn. Þægilegt og heilsusamlegt. Sahara framleiddi bæði myndbönd og ljósmyndir sem tala saman og tengjast í jákvæðri orku og heilbrigðum lífsstíl.