Leikjavæðing: Tryggari viðskiptavinir og aukin umferð í verslanir
Morgunverðarviðburður á vegum Playble og Sahara
þriðjudaginn 14. apríl
Um viðburðinn
Hvernig getur leikjavæðing (e. gamification) orðið lykilþáttur í markaðssetningu sem skilar raunverulegum árangri?
Á þessum morgunverðarviðburði förum við yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt leikjavæðingu til að auka þátttöku, byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini og auka umferð í verslunum, bæði stafrænt og í raunheimum.
Við fáum til okkar sérfræðinga frá Playable sem deila alþjóðlegri innsýn, raunverulegum dæmum og nýjustu þróun í lausnum sem hjálpa vörumerkjum að ná meiri árangri.
Gamification
Hvernig leikjavæðing hefur verið nýtt á alþjóðavísu til að auka árangur í markaðssetningu
Heildræn nálgun
Hvernig leikjavæðing fellur inn í heildarsamsetningu markaðsaðgerða og styður við aðrar rásir.
Íslensk verkefni
Raunveruleg íslensk dæmi og hvernig fyrirtæki hérlendis hafa nýtt þessa nálgun
Nýting gagna
Hvernig hægt er að nýta gögn úr leikjavæðingu til að bæta árangur og taka betri ákvarðanir
Playble x Sahara 2025
Playable og Sahara kynntu kraft leikjavæðingar fyrir íslenskum fyrirtækjum
Um 40 fulltrúar fyrirtækja komu saman í fyrra á morgunverðarfundi í Reykjavík þar sem Sahara, samstarfsaðili Playable á Íslandi, kynnti ásamt danska fyrirtækinu hvernig leikjavæðing getur umbreytt markaðsstarfi.

Andreas Fabricius
Co-CEO & CCO
Playable
Andreas er meðstofnandi og stjórnandi hjá Playable, leiðandi fyrirtæki í gamification-markaðslausnum. Hann hefur leitt alþjóðlega uppbyggingu fyrirtækisins og hjálpað vörumerkjum að auka þátttöku og árangur með gagnadrifnum og skapandi lausnum.

Elin Vidlund
Customer Success Manager
Playable
Elin starfar sem árangursstjóri viðskiptavina
hjá Playable þar sem hún hjálpar vörumerkjum að nýta leikvæðingu til að auka þátttöku og umbreyta henni í mælanlegan árangur. Hún vinnur á mótum stefnu, tækni og markaðs og styður fyrirtæki við að efla sölu, tryggð og vörumerkjavitund.

Andreas Aðalsteinsson
Head of Growth and Strategy
Sahara
Andreas leiðir stefnumótun og vaxtarverkefni með áherslu á mælanlegan árangur og skalanlegan vöxt. Hann hefur víðtæka reynslu af stafrænum markaðsmálum og sérhæfir sig í að byggja upp árangursdrifin markaðskerfi þar sem gögn, stefna og sköpun vinna saman.
Skráning
Morgunverðarviðburður á vegum
Playable & Sahara
Viðburðurinn fer fram hjá Sahara, Vatnagörðum 8, 104 Reykjavík.
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:30 - 9:00.
Fyrirlestranir hefst kl 9:00 - 10:15
Sætafjöldi takmarkast við 40 manns.
Áhugasamir geta óskað eftir 30 mín. ráðgjöf í kjölfar viðburðar og munum við hafa samband við þá til að finna tíma.
Playble x Sahara
Takk fyrir skráninguna.
Úps! Upp hefur komið villa, vinsamlegast reynið aftur.